4.7 C
Selfoss

Andri Már er unglistamaður Árborgar 2026

Vinsælast

Mikil sköpunargleði, hugmyndaauðgi og listræn nálgun einkenndi þátttöku í verkefninu Unglistamaður Árborgar 2026, þar sem ungir listamenn úr sveitarfélaginu fengu tækifæri til að sýna hæfileika sína og deila verkum sínum með samfélaginu.

Dómnefnd fór yfir fjölbreytt og glæsileg innsend verk og var niðurstaðan afar jöfn. Öll listaverkin báru með sér metnað, frumleika og einstaka sýn, og í mörgum tilfellum munaði einungis örlitlu á stigagjöf milli verka. Það sýnir vel þann mikla kraft sem býr í ungu listafólki í Árborg.

Unglistamaður Árborgar 2026 er Andri Már Óskarsson, 12 ára.
Í öðru sæti varð Sóley Nanna, og í þriðja sæti varð Sigurlína Reynis.

Efstu þrjú sætin (Andri Már, Sigurlín og Sóley) með Braga og yngsta keppandanum, Björgvini. Mynd: Aðsend.
Andri Már og Sóley og listaverk í keppninni frá öllum þeim sem tóku þátt. Mynd: Aðsend.

Við óskum þeim innilega til hamingju með glæsilegan árangur og þökkum um leið öllum þeim sem tóku þátt. Framlag hvers og eins skipti máli og saman skapaði þessi hópur sýningu sem fyllti dómnefnd og gesti stolti og aðdáun.

Listaverkin munu halda áfram að gleðja augu gesta á næstunni þegar þau verða sett upp til sýnis í Sundlaug Selfoss, þar sem fleiri fá tækifæri til að njóta þessarar frábæru sköpunar. Við höfum ekki enn sett listaverkin upp, en það mætti kannski taka fram að þau eru til sýnis á vinnustofu MFÁ.

Við erum ótrúlega stolt af öllum þátttakendum – listaverkin vöktu mikla athygli á meðal gesta.

Í dómnefnd sátu Bragi Bjarnason, bæjarstjóri, Berglind Björgvinsdóttir, formaður MFÁ, Þórleif Hanna Guðgeirsdóttir, varaformaður MFÁ, Emilía Ósk Friðriksdóttir, 10 ára, Elmar Andri Bragason, 10 ára, Sara Þórunn Fannarsdóttir, 10 ára, Hinrik Þór Friðriksson, 8 ára og Bjarnþór Grétarsson, 8 ára.

Dómnefndin frá vinstri Þórleif Hanna varaformaður MFÁ, Bragi bæjarstjóri, Elmar Andri, Emilía Ósk, Hinrik Þór, Berglind formaður MFÁ, Sara Þórunn og Bjarnþór. Mynd: Aðsend.

Verðlaunaafhending fór fram sunnudaginn 26. apríl kl. 12:00 á vinnustofu MFÁ.
Öll börn febgu þátttökuverðlaun og buðum við öllum þátttakendum og fjölskyldum þeirra upp á kaffi og léttar veitingar.

Nýjar fréttir