4.7 C
Selfoss

Góð frammistaða Berserkja  

Vinsælast

Berserkir BJJ sendu þrjá keppendur til leiks á Mjölnir Open 20 sem haldið var laugardaginn 25. apríl. Keppendurnir voru þeir Þröstur Valsson, Fannar Júlíusson og Egill Blöndal.

Mjölnir Open er opið mót þar sem flest brögð eru leyfð og keppendur eru ekki flokkaðir eftir beltastigum, sem gerir keppnina sérstaklega krefjandi þar sem reyndari og minna reyndir keppendur mætast.

Fannar Júlíusson hóf keppni af krafti og sigraði fyrstu glímu sína með öruggum hætti, en laut í lægra haldi í annarri glímu sinni gegn síðar sigurvegara flokksins. Þröstur Valsson átti í erfiðleikum í sínum þyngdarflokki, en bætti upp fyrir það í opnum flokki þar sem hann vann sannfærandi sigur á töluvert reyndari andstæðingi og sýndi þar miklar framfarir.

Egill Blöndal keppti í -99 kg flokki þar sem níu keppendur tóku þátt og stóð uppi sem sigurvegari eftir fína frammistöðu.

Úrslit keppenda Berserkja voru eftirfarandi:
Þröstur Valsson hafnaði í 5. sæti í +99 kg flokki og opnum flokki, Fannar Júlíusson endaði í 9. sæti í -77 kg flokki og Egill Blöndal tryggði sér 1. sæti í -99 kg flokki.

Frammistaða keppendanna var góð og sýnir aukinn styrk og framfarir hjá félaginu.

Nýjar fréttir