Matgæðingur vikunnar er Kristín Sveinsdóttir.
Takk elsku Hildigunnur mín, fyrir að skora á mig að verða næsti matargæðingur og fyrir falleg orð.
Ég er mjög vel gift og þarf ekki alltaf að elda hérna heima, sé kannski meira um bakstur.
En mig langar að koma með geggjað góða uppskrift að kjúklingi sem er mjög vinsæll á mínu heimili
og svo tortillakökuuppskrift sem ég hef nokkrum sinnum gert fyrir Hildigunni mína.
Rétturinn er alltaf kallaður Tinnuréttur hérna hjá mér því uppskriftina fékk ég inn við Landmannahelli hjá henni Tinnu sem var landvörður þar fyrir nokkrum árum.
Tinnuréttur
- 3-4 kjúklingabringur
- 400 g rjómaostur, þessi í bláa boxinu
- 1 krukka Ostasósa frá Santa Maria
- 1 krukka mild salsasósa frá Santa Maria
- Rifinn ostur
- Smjör til steikingar
- Salt og pipar
- Doritos eða Tortilla Chips
- Stilli bakarofninn á 200 °c.
Byrja á að skera kjúklinginn í litla bita og steikja upp úr smjöri á pönnu, krydda með salti og pipar.
Meðan kjúklingurinn eldast tek ég rjómaostinn og smyr honum í botninn á eldföstu fati, set svo ostasósuna ofan á rjómaostinn og svo salsasósuna ofan á ostasósuna.
Þegar kjúklingurinn er eldaður set ég hann ofan á salsasósuna og því næst rifinn ost ofan á allt saman.
Set inn í ofn og elda í 15–20 mín eða þar til sósan fer að krauma.
Borða með Doritos eða Tortilla Chips.
Svo af því að Hildigunnur nefndi að ég hefði bjargað henni oftar en einu sinni í veisluhöldum langar mig
að gefa ykkur líka uppskrift að tortillakökum sem eru alltaf í boði í afmælum hjá mér.
Ég er ekki mikill dassari í matargerð og fer helst alveg eftir uppskriftum en þessi Tortilla-uppskrift er viðmið en svo þarf bara að smakka til.
Tortillakökur með osti og sósu frá Röggu
- Ca 200 g rjómaostur, þessi í bláa boxinu frá MS
- 1 dós sýrður rjómi 18%
- Ca 200-250 g grænmetissósa frá E-Finnsyni
- Slatti af púrrulauk, smátt saxaður
- Smá karrý
- Ostur í sneiðum
- 2 pk tortillakökur frá Santa Maria eða Euro shopper medium stærð.
- Salsasósa frá Santa Maria
Ég blanda rjómaosti, sýrðum rjóma og grænmetissósunni saman í hrærivél.
Saxa niður púrrulaukinn og set út í og krydda svo með smá karrý.
Allt hrært vel saman.
Tek svo tvær tortillakökur, legg þær hlið við hlið og set sósublönduna á báðar kökurnar og fjórar ostsneiðar á aðra kökuna og loka með hinni, set þetta svo á disk, held áfram þangað til kökurnar klárast.
Set svo plastpoka yfir staflann og geymi í ísskáp yfir nótt.
Sker svo tortillakökurnar í átta bita og raða fallega á disk og býð upp á salsasósu með.
Verði ykkur að góðu.
Mig langar að skora á nágranna minn hann Sævar Birni að koma með einhverja flotta uppskrift. Hann býr til mjög góða ostaköku svo ég hlakka til að sjá hvað hann býður okkur upp á.




