4.7 C
Selfoss

Koppafeiti gefur út nýjan slagara

Vinsælast

Sunnlenska hljómsveitin Koppafeiti hefur gefið út nýtt lag á öllum helstu streymisveitum sem ber titilinn Langar næturLangar nætur er fyrsta lag ársins 2026 sem hljómsveitin sendir frá sér.

Langar nætur er nýjasta lagið frá hljómsveitinni Koppafeiti. Lagið fjallar um það þegar að daginn tekur að lengja og næturnar verða lengri. Lagið var samið um vetur með sumar í huga,“ segir Hvergerðingurinn Ívar Dagur, gítarleikari hljómsveitarinnar, í samtali við Dagskrána.

Lögin semur Ívar ásamt Rangæingnum Hákoni Kára Einarssyni hljómborðsleikara. Aðrir meðlimir hljómsveitarinnar eru Selfyssingarnir A. Smári Orrason trommuleikari, Sólmundur Ingi Símonarson bassaleikari og Rúnar Freyr Gunnarsson slagverksleikari.

Koppafeiti hefur notið mikilla vinsælda undanfarin ár og hefur fest sig í sessi með sínum einkennandi íslenska sveitaballstíl. Á síðasta ári gaf Koppafeiti út tvö lög, annars vegar lagið HALLÓ og lagið Besta kvöld lífs míns. Árið þar á undan sendi sveitin frá sér sína fyrstu plötu, Nú verða sagðar kvöldfréttir, sem vakti töluverða athygli.

„Koppafeiti býður til slagaramessu allt árið 2026 og eru áhugasamir beðnir um að hafa samband á netfangið koppafeiti@baragaman.is,“ segir Ívar.

Hlusta á lag:
Langar nætur

Nýjar fréttir