Tómas Grétar Gunnarsson fuglafræðingur leiðir göngu um Skálholtstungu laugardaginn 9. maí kl 9:00, þar sem hann fræðir gesti um fuglalíf staðarins.
Farið verður í göngu um Skálholtstungu, tungu milli Hvítár og Brúarár þar sem árnar mætast. Svæðið býr yfir einni stærstu óröskuðu mýri á Suðurlandi og ríkulegu fuglalífi. Tómas fræðir um líffræðilega fjölbreytni svæðisins, mikilvægi þess fyrir fuglalíf og menningarminjar í landslaginu.
Gangan er um 6 km og eru að mestu á jafnsléttu. Mikilvægt er að klæðast eftir veðri og gott að koma með nesti.
Aðgangur ókeypis og öll hjartanlega velkomin!




