Síðustu Njálusýningar í vor verða í Félagsheimilinu Hvoli Hvolsvelli sunnudaginn 10. maí kl 14.00 og á Sviðinu Selfossi sunnudagskvöldið 10. maí kl. 20.00. Þau Guðni Ágústsson, Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir og Gissur Páll Gissurarson hafa flutt Njáluperlur í Salnum í Kópavogi fjórum sinnum við góðar undirtektir og góða aðsókn. Hér er Brennu-Njálssaga sett í nýjan og spennandi búning og skreytt með óperusöng Gissurar Páls Gissurarsonar sem syngur ramm íslensk lög við undirleik Matthildar Önnu Gísladóttur.
Njálufélagið undir forystu Guðna Ágústssonar áformar mörg verkefni á næstunni Njálureið, málþing ofl. Og viðhafnarútgáfu af Brennu Njálssögu Jóns Böðvarssonar prýdda myndum af sögu persónunum málaðar í lit að Þórhildi Jónsdóttur frá Lambalæk. Ennfremur verða Njálusýningar teknar upp á ný með haustinu.


