4.7 C
Selfoss

Afmælistónleikar – Björgvin Þ. Valdimarsson 70 ára

Vinsælast

Laugardaginn 9. maí verða haldnir tónleikar í Íþróttahúsinu Iðu á Selfossi þar sem Sinfóníuhljómsveit Suðurlands mun flytja verk Björgvins Þ. Valdimarssonar tónskálds og kórstjóra. Auk hljómsveitarinnar koma fram einsöngvararnir Dísella Lárusdóttir, Alexander Jarl Þorsteinsson og Einar Þór Guðmundsson, Karlakór Selfoss, Karlakór Rangæinga, Sönghópurinn Öðlingar, Kirkjukór Selfosskirkju, Kirkjukór Breiðabólstaðarprestakalls og Kór Odda- og Þykkvabæjarkirkju. Gunnlaugur Bjarnason verður kynnir og hljómsveitarstjóri er Guðmundur Óli Gunnarsson.

Björgvin Þ. Valdimarsson er borinn og barnfæddur Selfyssingur og þar hófst hans tónlistarferill. Hann stundaði nám við Tónlistarskóla Árnesinga og síðar varð hann kennari við skólann auk þess sem hann stjórnaði Samkór Selfoss í sex ár.

Björgvin var ungur þegar hann fór að semja og útsetja tónlist, mest fyrir kóra, einsöngvara og píanó og má þar meðal annars nefna lagið Undir Dalanna sól sem er eitt af hans þekktari lögum. Tónlistarferill hans er langur og farsæll og á tónleikunum í Íþróttahúsinu Iðu verða bæði flutt ný og eldri verk. Meðal eldri laganna má nefna Vorsól, Stíg á bak, Höfðingja smiðjunnar og Rangárþing sem nú er flutt í nýjum búningi með hljómsveitinni. Á efnisskránni eru einnig léttir og skemmtilegir dúettar sem einsöngvararnir syngja ásamt kór og hljómsveit. Á tónleikunum verða m.a. frumfluttir þrír kaflar úr nýrri svítu þar sem Björgvin færir æskuminningar sínar frá Selfossi í tóna. Kaflarnir sem verða fluttir heita Æskuminningar við Ölfusá, Í fótbolta á Stjánatúni og Gamli skódinn hans pabba. Tónleikunum lýkur með fluttningi á verki sem heitir Jörð en textinn fjallar um land í mótun, hin miklu náttúruöfl og fegurð landsins. Þetta er verk fyrir tvo einsöngvara, stóran blandaðan kór og hljómsveit.

Tónleikarnir hefjast kl. 16:00 og miðasala er á tix.is

Nýjar fréttir