4.7 C
Selfoss

Vorið kemur, heimur hlýnar – Vortónleikar Söngsveitar Hveragerðis

Vinsælast

Vorið er tíminn sem tónlistarfólk gleðst og heldur sína uppskeruhátíð, ef svo má segja. Vorið lyftir andanum og það er hlýrra í lofti og allstaðar eru flottir tónleikar í boði, einmitt uppskera tónlistarfólksins eftir veturinn.

Vetrarstarf Söngsveitar Hveragerðis fór af stað í september síðastliðnum eftir frábæra kórferð til Ítalíu þar sem við vorum á kóramóti á Verona og Garda svæðinu.

Þema jóltónleikanna okkar var uppáhalds lög kórfélaga og þema vorsins er Hveragerði, enda bærinn okkar 80 ára og því við hæfi að halda upp á tímamótin með því að lagaval okkar sé eftir tónskáld sem tengist Hveragerði með einum eða öðrum hætti.

Í október fengum við svo boð á annað kóramót á Ítalíu. Í þetta skipti á Sardiníu. Auðvitað slóum við til og erum við að fara til Sardiníu um mánaðarmótin ágúst/september næstkomandi. Og að sjálfsögðu munum við blanda Ítalíu lögunum okkar inn í vortónleikana okkar með íslenskum þjóðlögum og öðrum íslenskum perlum.

Það hefur verið líf og fjörhjá okkur í vetur og tókum við meðal annars þátt í styrktartónleikum fyrir hreinsun á orgelinu í Hveragerðiskirkju og núna 2.maí síðastliðinn sungum við með Álafosskórnum og Söngfélagi Þorlákshafnar á tónleikum í Breiðholtskirkju.

Vortónleikarnir okkar verða haldnir í Hveragerðiskirkju 10.maí kl:20 og kostar 4.500kr.- Vinsamlegast athugið engin korta viðskipti en hægt er að leggja inn á kórinn.

Stjórnandi Söngsveitar Hveragerðis er Margrét Stefánsdóttir. Meðleikur á píanó er í höndum Esterar Ólafsdóttur. Hljóðfæraleikur Kristján Ólafsson. Og svo fáum við góða gesti, nemendur úr Tónlistarskóla Árnesinga. Að tónleikum loknum verður boðið upp á kaffi og konfekt.

Söngsveit Hveragerðis hlakkar til að sjá ykkur öll og fagna vorinu með ykkur.

Nýjar fréttir