5 C
Selfoss

Ungur maður til forystu í Árborg

Vinsælast

Alltaf vekur það athygli þegar ungt fólk gengur fram til að þjóna bæ sínum eða héraði. Matthías Bjarnason er einn yngsti leiðtogi sem leiðir lista og býður fram krafta sína fyrir sveitarfélagið og fólkið í Árborg, aðeins 26 ára að verða hinn 9. maí nk. Það skemmtilega er þó það að hann varð yngsti hreppsnefndarmaður landsins fyrir átta árum. En átján ára var hann kosinn í hreppsnefnd Skeiða- og Gnúpverjahrepps í uppeldissveit sinni og ekki minnkaði áhuginn fyrir málefnum fólksins við það.  Hér í Árborg hefur hann setið sem varamaður í bæjarstjórn í fjögur ár. Ennfremur hefur hann menntað sig á þessu sviði er útskrifaður með   BA-gráðu í opinberri stjórnsýslu. Hann hefur á ungum aldri fengist við margt stofnað fyrirtæki í streymisþjónustu og starfar við sjónvarpsútsendingar.                             Ef æskan þér réttir örvandi hönd ertu á framtíðarvegi, sagði skáldið. Hér stendur Matthías við styttuna af Agli Thorarensen sem tvítugur flutti að Sigtúnum og varð kaupmaður og síðar kaupfélagsstjóri og frumkvöðull: ,,Jarlinn af Sigtúnum.”

Matthías er selfyssingur að ætt og uppruna. Honum mun fylgja ný hugsun og vilji til að styrkja sveitarfélagið Árborg og mannlífið. Treystum ungu fólki til ábyrgðar og forystu kjósum Matthías og öflugt framboð XB.

Guðni Ágústsson

Nýjar fréttir