9.5 C
Selfoss

Vigdís Anna, Anna Sigríður og Eva Dögg unnu Æsku Suðurlands 2026

Vinsælast

Lokamót mótaraðarinnar Æska Suðurlands fór fram á Brávöllum á Selfossi síðastliðinn sunnudag þar sem keppt var í tölti í öllum flokkum. Með því lauk stigakeppni vetrarins og urðu þær Eva Dögg Maagard Ólafsdóttir, Anna Sigríður Erlendsdóttir og Vigdís Anna Hjaltadóttir sigurvegarar í sínum flokkum.

Á mótinu var keppt í T7 í barnaflokki, T3 í unglinga- og ungmennaflokki auk mjólkurtölts í öllum flokkum. Þá fengu pollar einnig að spreyta sig í tölti og voru þeir ellefu talsins.

Æska Suðurlands er haldin í samstarfi hestamannafélaganna Geysis, Jökuls, Sleipnis, Ljúfs og Háfeta. Um er að ræða stigakeppni þar sem knapar safna stigum á þremur bestu greinum sínum af alls sex yfir mótaröðina.

Í barnaflokki stóð Eva Dögg Maagard Ólafsdóttir úr Geysi uppi sem sigurvegari með 32 stig. Í unglingaflokki sigraði Anna Sigríður Erlendsdóttir úr Geysi með fullt hús stiga, 36 talsins, og í ungmennaflokki varð Vigdís Anna Hjaltadóttir úr Sleipni efst með 36 stig.

Efstu knapar í stigakeppni að loknum öllum sex greinunum.

Barnaflokkur

1. sæti Eva Dögg Maagard Ólafsdóttir (Geysir) 32 stig
2. sæti Sigrún Freyja Einarsdóttir (Sleipnir) 30 stig
3. sæti Katla Dís Hannesdóttir (Geysir) 28 stig
4-5. sæti Hrafnhildur Þráinsdóttir (Ljúfur) 23 stig
4-5. sæti Steinunn Thea Hallgrímsdóttir (Sleipnir)

Unglingaflokkur

1. sæti Anna Sigríður Erlendsdóttir (Geysir) 36 stig
2. sæti Talía Häsler (Ljúfur) 30 stig
3. sæti Sigurrós Mábil Hjaltested (Sleipnir) 25 stig
4. sæti Helgi Björn Guðjónsson (Geysir) 23 stig
5. sæti Ólavía Ósk Gunnarsdóttir (Sleipnir) 23 stig

Ungmennaflokkur

1. sæti Vigdís Anna Hjaltadóttir (Sleipnir) 36 stig
2. sæti Hulda Vaka Gísladóttir (Háfeti) 32 stig
3. sæti Heiðdís Fjóla T. Jónsdóttir (Sleipnir) 28 stig
4. sæti Sigrún Björk Björnsdóttir (Ljúfur) 26 stig
5. sæti Sunneva Sif Jónsdóttir (Ljúfur) 14 stig

Nánari niðurstöður er að nálgast í Horsday appinu (T7 ogT3) og á Facebook síðu Æsku Suðurlands.

Nýjar fréttir