Anna Metta Óskarsdóttir úr UMF Selfoss átti eftirminnilegan dag í Vormaraþoni Félags maraþonhlaupara sem fram fór í Reykjavík síðastliðinn laugardag þegar hún setti þrjú héraðsmet í hálfmaraþoni.
Anna Metta kom í mark á tímanum 1:57:02 og dugði sá árangur til nýrra HSK-mets í flokkunum 16–17 ára, 18–19 ára og 20–22 ára.
Mesta bætingin var í 16–17 ára flokki þar sem Anna Metta bætti eldra met um rúmar 55 mínútur, en það hafði staðið óhaggað í 17 ár. Þá bætti hún tíu ára gamalt met í 18–19 ára flokki um rúmar 26 mínútur.
Einnig féll 16 ára gamalt met í 20–22 ára flokki, þar sem Anna Metta bætti besta tíma um rúmar sjö mínútur.
Um er að ræða glæsilegan árangur hjá ungu hlaupakonunni sem skrifaði nafn sitt rækilega í sögu héraðsfrjálsíþróttanna með þessari frammistöðu.



