Sveitarfélagið Árborg hefur nú skilað ársreikningi fyrir árið 2025. Niðurstaðan sýnir gjörbreytta stöðu frá því sem var á árunum 2018–2022. Reksturinn er kominn í jafnvægi og sveitarfélagið hefur náð tökum á stöðu sem var orðin mjög alvarleg.
Það er því sérstakt að sjá fulltrúa minnihlutans keppast við að gera lítið úr niðurstöðunni. Þar fara fulltrúar flokka sem hafa aldrei viljað horfast almennilega í augu við þann vanda sem þeir komu sveitarfélaginu í. Flokkar sem báru ábyrgð á síðasta meirihluta hafa lítið sem ekkert lagt til málanna annað en gagnrýni og í raun enga trúverðuga lausn aðra en að halda áfram að fjármagna daglegan rekstur með lántökum.
Á árunum 2018–2022 jukust útgjöld sveitarfélagsins langt umfram tekjur. Skuldir hækkuðu úr 12,3 milljörðum króna í 28,3 milljarða króna. Þar af fóru um 5 milljarðar króna í að fjármagna daglegan rekstur. Slíkt er einfaldlega ósjálfbært og óboðlegt. Á sama tímabili voru fasteignagjöld jafnframt hækkuð verulega, eða um 52%, sem sýnir að vandinn snerist ekki um tekjuskort einan og sér heldur fyrst og fremst um stjórnleysi í rekstri.
Staðan alvarleg
Árið 2022 um leið og sjálfstæðismenn tóku við völdum var snúið við öllum steinum í umfangsmiklum hagræðingum og fækkun stöðugilda með það að markmiði að ná tökum á rekstrinum án þess að skerða grunnþjónustu. Allar þær aðgerðir dugðu þó því miður ekki til sem endurspeglaðist í þeirri staðreynd að nokkur mánaðarmót árið 2023 átti sveitarfélagið rétt svo fyrir launum en ekki öðrum rekstrarkostnaði, og ekkert lánsfjármagn í hendi.
Staðan var gríðarlega alvarleg. Þess vegna neyddist sveitarfélagið til að leggja aukaálag á útsvar árið 2024. Það var íþyngjandi neyðarúrræði fyrir íbúa sem lögðust þar með á árarnar með sveitarfélaginu á erfiðum tíma. Sú ákvörðun var okkur í meirihlutanum þungbær, en hún var nauðsynleg til að verja grunnþjónustu, tryggja áframhaldandi rekstur og koma í veg fyrir enn alvarlegri stöðu.
Árborg á réttri leið
Það þarf að segja hlutina eins og þeir eru. Núverandi meirihluti Sjálfstæðisflokksins stofnaði ekki til þess vanda sem við tókum við. Hann varð til vegna skuldasöfnunar og óráðsíu síðasta meirihluta Samfylkingar, Framsóknar og Viðreisnar sem hluti af Áfram Árborg.
Það sem núverandi meirihluti hefur gert er að horfast í augu við vandann, taka erfiðar ákvarðanir og stöðva skuldasöfnunina. Árangurinn er farinn að sjást. Fleiri íbúar standa nú að baki hverju stöðugildi, reksturinn er stöðugri og fasteignagjöld eru byrjuð að lækka.
Verkefninu er þó ekki lokið. D-listinn vill byggja Árborg upp á traustum grunni, bæta þjónustu og lækka álögur á íbúa og fyrirtæki. Framtíð Árborgar kallar á festu, ábyrgð og raunsæi.
Sveinn Ægir Birgisson
2.sæti D-lista og formaður bæjarráðs Árborgar



