Ljóð geta sagt ótal margt í aðeins örfáum orðum. Þau geta vakið upp sterkar tilfinningar. Þór Stefánsson ljóðskáld hefur leikið sér með ljóðformið um árabil og fáir hafa samið og þýtt jafn margar ljóðabækur. Þær eru fimmtíu talsins á fimm tungumálum.
Skáldið ætlar að lesa upp úr verkum sínum á Konubókastofu, bókasafni Eyrarbakka (Túngötu 40), miðvikudaginn 29. apríl klukkan 17.
Tilefnið er útgáfa tuttugustu frumsömdu ljóðabókar Þórs. Á sýningunni má skoða bækur hans á íslensku og þýðingar þeirra á arabísku, dönsku, ensku, frönsku og japönsku. Einnig verða til sýnis þýðingar hans á verkum erlendra skálda.
Þór bjó í Frakklandi og hefur þýtt fjölda ljóða úr frönsku yfir á íslensku. Alls verða um fimmtíu bækur til sýnis og gefst gestum kostur á að fletta þeim og kynna sér fjölbreyttan bókmenntaheim skáldsins. Að sýningu lokinni verða bækurnar til útláns á bókasafninu á Eyrarbakka.
Viðburðurinn er hluti af listahátíðinni Oceanus – Stórsjór sem haldin verður á Eyrarbakka í vor.
Öll eru hjartanlega velkomin.




