11.1 C
Selfoss

Árborg – þar sem fámennið er áskorun

Vinsælast

Það hefur varla farið fram hjá neinum að íbúum sveitafélagsins Árborg hefur fjölgað mjög hratt á síðustu árum. Íbúar Árborgar á Selfossi, Eyrarbakka, Stokkseyri og í Tjarnabyggð eru rétt um 13.000. Áskoranirnar sem fylgja örri íbúafjölgun eru miklar og jafnvel heyrast raddir um að það mætti hægja á þróuninni.

Þessi háværa umræða á hins vegar engan veginn við um allt sveitarfélagið. Það er einungis Selfoss sem stækkar á ógnarhraða, svo að erfitt er að halda í við byggingu skóla og leikskóla. Á sama tíma er mjög hægur vöxtur í þorpunum tveimur, Eyrarbakka og Stokkseyri. Þar gerir fólksfæðin það að verkum að sveitarfélagið á erfitt með að uppfylla lögbundnar skyldur sínar og veita góða þjónustu.

Ef skoðaðar eru tölur frá Hagstofu Íslands um fjölgun íbúa í sveitarfélaginu frá árinu 2000 fram til 2026, sést svart á hvítu hvað íbúar Árborgar búa við ólíkan veruleika eftir búsetu.

Augljóslega kallar þetta á stefnubreytingu. Til að stuðla að hagkvæmari innviðum í þorpunum eins og skóla, leikskóla og íþrótta- og menningaraðstöðu o.fl. þarf íbúðabyggðin að stækka. Samgöngur yrðu efalaust betur nýttar með fjölgun íbúa og svo mætti lengi telja. Sveitafélagið mætti nota hvata eins og að lækka verulega lóðarverð í þorpunum og jafnvel leggja af byggingarréttargjöld. Sama mætti gilda um atvinnulóðir. Til lengra tíma litið hagnast Árborg á því. Einnig væri hægt að byggja sómasamlegt skólahús á Eyrarbakka og bæta aðstöðu fyrir skóla og íþróttaiðkun á Stokkseyri. Góð aðstaða laðar að fjölskyldufólk og starfsfólk.

Heilbrigð stækkun þorpanna hagur allra

Margir þorpsbúar, og þar með talin ég sem bý á Eyrarbakka, vilja ekki of öran vöxt sem gæti skert lífsgæðin sem fylgja því að búa í litlu samfélagi. Heilbrigður vöxtur væri samt tvímælalaust til hagsældar. Það væri t.d. flott markmið að ná upp í þann íbúafjölda sem var hér árið 1920. Þá bjuggu í Eyrarbakkahreppi 857 manns og í Stokkseyrarhreppi voru íbúar 742 talsins. Væri ekki fínt markmið að sjá aftur svipaðar íbúatölur? Því það er ekki góður kostur að vera afskekkt þorp í alfaraleið um ókomin ár.

Árborg á lóðir

Þessi hæga byggðaþróun á Eyrarbakka og Stokkseyri er frekar undarleg í ljósi þess að sveitarfélagið á fjölmargar byggingarlóðir í báðum þorpum, en velur frekar uppbyggingu á Selfossi. Ef sveitarstjórn vill sýna í verki tiltrú þess á vöxt samfélagsins í heild sinni þá ætti uppbygging á Eyrarbakka og Stokkseyri að vera í forgangi. Hingað til hefur það ekki verið svo. Það er ósk mín að Sveitarfélagið Árborg verði til fyrirmyndar sem fjölkjarnasveitarfélag þar sem allir byggðarkjarnar fá að blómstra.  Til þess þarf víðsýni, hugarfarsbreytingu og hugrekki til athafna.

Linda Ásdísardóttir,
óháð í 11. sæti á lista Samfylkingarinnar og óháðra í Árborg.

Nýjar fréttir