7.3 C
Selfoss

Selfoss á leið á Norðurlandamót unglinga í hópfimleikum

Vinsælast

Laugardaginn 18. apríl næstkomandi fer fram Norðurlandamót unglinga í hópfimleikum. Mótið fer fram í Sola í Noregi og á Selfoss 2 lið á mótinu, stúlknalið og blandað lið unglinga.
Liðin unnu sér þátttökurétt með því að sigra úrtökumót sem haldið var á vegum Fimleikasambands Íslands í nóvember síðastliðnum.
Liðin hafi undirbúið sig vel síðastliðna mánuði, unnið að nýjum æfingum, fínpússað stökkin sín og lagt mikla vinnu í gólfæfingarnar. Það fylgir því talsverður kostnaður að fara að keppa á móti sem þessu og vilja keppendur nýta tækifærið og þakka innilega fyrir veittan stuðning, en SET var þeirra stærsti styrktaraðili fyrir þetta mót. Egill Guðjóns ehf, Lágafell verslun og byggingar og Fossvélar veittu þeim einnig góðan styrk, auk íbúa Selfoss og annarra velunnara sem hafa tekið vel á móti þeim í fjáröflunum. Takk!
Þeir sem vilja fylgjast með keppninni og/eða einkunnum í beinu streymi geta fundið upplýsingar um það á www.selfoss.net/fimleikar
Fimleikadeild Selfoss óskar keppendum og þjálfurum góðrar ferðar og góðs gengis á mótinu  – Áfram Selfoss!

Fimleikadeild UMF

Blandað lið unglinga

Bergþóra Hauksdóttir
Birgir Árni Sigmundsson
Eiður Hilmar Sigmundsson
Hinrik Jarl Aronsson
Ísold Rán Andradóttir
Kolbrún María Ívarsdóttir
Kristín Ásta Hjaltadóttir
Matthías Anton Kristjánsson
Sunneva Gunnarsdóttir
Svavar Orri Arngrímsson

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Stúlknalið

Birta Rós Einarsdóttir
Elva Lillian Ottesen Sverrisdóttir
Emilía Rós Ingimarsdóttir
Ingibjörg Anna Sigurjónsdóttir
Julia Sigríður Grzegorzsdóttir
Karen Tara Kristdórsdóttir
Kristín María Kristjánsdóttir
Rakel Björk Hjaltadóttir
Stella Natalía Ársælsdóttir
Thelma Sif Jóhannesdóttir

Nýjar fréttir