Rakel Magnúsdóttir er matgæðingur vikunnar.
Ég vil byrja á að þakka dóttur minni, Eydísi Lilju, kærlega fyrir tilnefninguna. Þetta er sannur heiður og sýnir vonandi að hún hefur óbilandi trú á mér í eldhúsinu?
En ég verð reyndar að viðurkenna að ég á mjög erfitt með að titla sjálfa mig sem matgæðing, a.m.k. hvað eldamennsku varðar. Ég glugga lítið í uppskriftir, nema einhverjar ægilegar heilsuuppskriftir sem eru sneyddar af öllu sem flestum finnst gott og öll eldamennska mín einkennist af dassi, slatta og pínu mælieiningum þannig að eldamennskan er mjög tilraunakennd. Stundum er útkoman æðisleg, stundum alls ekki – en rétturinn sem ég ætla að deila með ykkur er einn af mínum uppáhalds og klikkar aldrei, sama hvernig slumpað er í uppskriftina. Hann er raunar svo mikið í uppáhaldi að í hvert sinn sem ég ber hann á borð þá langar mig að opna veitingastað til að leyfa öllum að njóta. Að því sögðu þá vil ég biðla til ykkar sem ætlið að prófa að fylgja nákvæmlega leiðbeiningunum um framreiðslu… það er nefnilega fátt sem pirrar mig meira en þegar einhver af fjölskyldumeðlimum breytir réttinum með því að nota „auka“ sósu eða annað meðlæti – án þess að vera búin að smakka upphaflega réttinn.
Rækju Taco með heimalöguðu hrásalati, avókadóstöppu, mexíkóosti og chili mæjó
Rækjurnar:
Afþýddu stórar rækjur. Ég kaupi þær sem eru ekki með hala.
Rækjurnar eru því næst settar í marineringu. Þú getur látið þær standa lengi – en þá verða þær mjög spæsí eða bara steikt þær um leið og gumsið er komið á:
Marinering:
–Góð olía (avocado- eða ólífuolía)
–Hvítlaukur, 4-6 rif eftir smekk
-1-2 chili, smátt skorið
-Ferskt engifer, má sleppa
-Siracha-sósa, ef þú vilt hafa þetta almennilega sterkt!
-Salt og pipar eftir smekk
Hrásalat:
Þegar rækjurnar eru komnar í marineringu geri ég hrásalatið og ég mæli með að gera stóran skammt því þetta salat er æðislegt með öllu kjöti, kjúklingi og inn í PÍTUBRAUÐ (hvet ykkur til að prófa það)!
-Rauðkál ca. 1 lítill haus
-Gulrætur 4-6 fer eftir stærð
-Rauðlaukur ca. 1 stk.
Þetta er saxað smátt … eða gerðu eins og ég og notaðu matvinnsluvél eða blandaraskál! Blandaðu svo saman sósunni sem inniheldur:
-Mæjones, eins mikið og þú vilt
-Sýrðan rjóma, bara smá
-Dijon sinnep (með hunangi ef þú vilt) ca 1 msk
-Eplaedik eða hvítvínsedik, smá slurk
-Hunang, hlynsíróp eða good good síróp, bara oggupons
-Salt og pipar
Avókadóstappa:
-2 fullkomin avókadó
-2-4 hvítlauksrif
-1-2 lime
-Cummin, salt og chiliflögur
-Ferskt kóríander
Stappaðu avókadóið saman með öllum innihaldsefnum. Smakkaðu til með cummin, salti og chiliflögum og e.t.v. smá fersku kóríander.
Heildarútkoman:
Steiktu rækjurnar á pönnu í 3–5 mínútur eða þar til liturinn breytist.
Hitaðu litlar tortillur í álpappír inni í ofni í ca. 10 mín. á 180 gráðum.
Þá er komið að aðalatriðinu – en það er að raða öllu gúmmelaðinu á litlu pönnsuna.
1) Chilli mæjó (okkur finnst Gunnars Chilli mæjó best)
2) Hrásalat – ekki spara það!
3) Rækjur, eins mikið og kemst á tortilluna
4) Avókadóstappa
5) Mexíkóostur (rifinn eða í sneiðum eftir smekk og nóg af honum)
Svo er það bara að NJÓTA!!!
Ég myndi vilja skora á Lindu Dögg Sveinsdóttur að vera næsta matgæðing vikunnar. Hún er húsmóðir af GUÐS náð og ég er sannfærð um að hún muni deila einhverju ægilega góðu með okkur.


