Suðurlandsmótið í skólaskák fór fram í Félagsheimilinu á Flúðum í gær, fimmtudaginn 9. apríl. Alls tóku 46 nemendur þátt frá 6 skólum af Suðurlandi. Tefldar voru 7 umferðir í þremur flokkum undir góðri stjórn Daða Ómarssonar skákstjóra mótsins. Úrslit voru eftirfarandi:
1.-4. bekkur (11 keppendur)
- sæti Brynjar Logi Sigurjónsson Arndal, Flúðaskóla, 6 vinningar
- sæti Hákon Orri Scheving Atlason, Flúðaskóla, 6 vinningar
- sæti Lauri Fannar Hjaltason, Flúðaskóla, 5 vinningar
- sæti Istvan Bator Jevuczo, Flúðaskóla, 5 vinningar
- sæti Baldur Vatnar Sigurjónsson Arndal, Flúðaskóla, 4 vinningar
Úrslit 1-4. bekkjar á chess-results (https://s1.chess-results.com/tnr1388905.aspx?lan=1&art=4…)
5.-7. bekkur (14 keppendur)
- sæti Jökull Pálsson, Hvolsskóla, 7 vinningar
- sæti Loftur Þorsteinsson, Flúðaskóla, 5 vinningar
- sæti Kacper Jerzy Sojka, Flúðaskóla, 4,5 vinningar
- sæti Þorbjörn Óðinn Arnarsson, Kerhólsskóla, 4 vinningar
- sæti Fannar Kristinsson, Flúðaskóla, 4 vinningar
Úrslit 5.-7. bekkjar á chess-results (https://s2.chess-results.com/tnr1388886.aspx?lan=1&art=4…)
8.-10. bekkur (21 keppandi)
- sæti Magnús Tryggvi Birgisson, Vallaskóla, 5,5 vinningar
- sæti Unnsteinn Magni Arnarsson, Reykholtsskóla, 5,5 vinningar
- sæti Davíð Bogi Sigmundsson, Sunnulækjarskóla, 5,5 vinningar
- sæti Helgi Fannar Oddsson, Flúðaskóla, 5 vinningar
- sæti Snorri Ingvarsson, Flúðaskóla, 5 vinningar
Úrslit 8.-10.bekkjar á chess-results (https://s1.chess-results.com/tnr1388848.aspx?lan=1&art=4…)
Sigurvegarar í hverjum flokki unnu sér inn þátttökurétt á Landsmóti í skólaskák verður haldið í félagsheimilinu í Ólafsvík helgina 9.-10. maí í samstarfi við Skákfélag Snæfellsbæjar. Við óskum þeim Brynjari, Jökli og Magnúsi góðs gengis á því móti.



