11.4 C
Selfoss

Nýr framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands

Vinsælast

Nýkjörin stjórn Bændasamtaka Íslands hefur gengið frá ráðningu Margrétar Ágústu Sigurðardóttur í starf framkvæmdastjóra samtakanna frá og með 1. ágúst næstkomandi. Tekur hún við keflinu af Örvari Þór Ólafssyni, sem tók við því hlutverki tímabundið í byrjun apríl sl. samhliða störfum sínum sem fjármálastjóri samtakanna. Hagvangur annaðist ráðningarferlið og sóttu 28 manns um stöðuna.

Margrét Ágústa er lögfræðingur að mennt. Hún er með meistaragráðu úr lagadeild Háskóla Íslands og LL.M gráðu í evrópskum og alþjóðlegum skattarétti frá Háskólanum í Lundi. Margrét hefur starfað síðustu 6 ár hjá PwC á skatta- og lögfræðisviði en þar áður um árabil hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu og yfirskattanefnd. Þá er Margrét Ágústa umsjónarkennari alþjóðlegs skattaréttar við Háskólann á Bifröst.

Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtaka Íslands: „Það er afar ánægjulegt að fá Margréti Ágústu til þessa starfs. Ég er ekki í nokkrum vafa um að lögfræðileg sérþekking hennar, m.a. í skatta- og Evrópurétti, auk tollalöggjafar bæði hérlendis og erlendis, mun nýtast okkur með margvíslegum hætti. Stjórn Bændasamtakanna er staðráðin í að taka hraustlega til hendinni á næstu misserum og árum. Margrét Ágústa á eftir að verða dýrmætur liðsauki í þeim verkefnum.“

Margrét Ágústa Sigurðardóttir: „Frá blautu barnsbeini hef ég borið djúpa virðingu fyrir bændum og störfum þeirra. Mér þykir því sérstaklega vænt um það traust sem mér hefur verið sýnt með þessari ráðningu. Engum dylst mikilvægi þess að íslenskur landbúnaður geti áfram staðið vörð um afdráttarlaus gæði og hreinleika framleiðslu sinnar ásamt því að gegna lykilhlutverki í fæðuöryggi þjóðarinnar. Við okkur blasa fjölmörg sóknarfæri og í þeim efnum geta Bændasamtökin skipt miklu máli með margvíslegum hætti. Ég er full tilhlökkunar að bretta upp ermar og taka kröftugan þátt í því mikilvæga verkefni ásamt starfsfólki og stjórn samtakanna. Ekki síður hlakka ég til þess samtals og samstarfs við bændur sem bíður mín í takti við þá áherslu stjórnarinnar að grasrótin stýri ávallt ferðinni.“

Bændasamtök Íslands

(Margrét Ágústa)

Nýjar fréttir