5.6 C
Selfoss

Katrín Jakobsdóttir er verðugur þjóðhöfðingi

Vinsælast

Sem forsætisráðherra er Katrín þegar góður þjóðarleiðtogi og hefur farnast vel í því mikla starfi. Hún hefur haft og mælst með mikla ánægjuvog þjóðar sinnar fyrir farsæl störf í þágu  hennar. Verið sá ráðherra sem alltaf hefur skorað hæst og verið í einna mestum metum í skoðanakönnunum. Sem forsætisráðherra í þriggja flokka ríkisstjórn ólíkra flokka hefur hún miðlað málum og leitt fram lausnir  í mörgum flóknum stórpólitískum málum. Hún er samvinnumaður, hún er lausna-miðuð og lætur ekki smá mál trufla sig.   Hún hefur verið leiðtogi ríkisstjórnar í um sjö ár samfleytt, lengur en sá farsæli leiðtogi Steingrímur Hermannsson. Tekist sem slík á við mjög erfið mál eins og Covetfaraldurinn, mikla manndrápspest af hættulegustu gerð, sem var heimsstyrjöld veirunnar. Snilldin hennar og ríkis-stjórnarinnar var sú að fela  læknum og færum lögreglustjóra að stýra aðgerðum, þeim Þórarni Guðnasyni og Ölmu Möller og Víði Reynissyni. Við misstum fólk en fáar þjóir gerðu þetta betur en við, og efnahagur landsins stóðst álagið.  Aðilar vinnumarkaðarins voru samvinnufúsir og því fór betur en áhorfðist. Hinni snjalli Harry S Truman forseti Bandaríkjanna sagði: ,,Það má ótrúlega mörgu koma í verk, ef manni er sama hverjum hlotnast heiðurinn.”

Þegar Katrín yfirgefur nú ríkisstjórnina er meiri gróska og uppgangur á Íslandi en annars staðar. Einstökum kjarasamningum tókst henni og ríkisstjórn hennar að stýra í höfn til fjögurra ára sem eru mjög mikilvægir og verðbólgan og háu vextirnir teknir að lækka. Sannarlega Þjóðarsátt. Atvinnustig á Íslandi með því alhæsta í Evrópu. Katrín er sannur Íslendingur og náttúruunnandi skilur vel grunnatvinnuvegi þjóðar sinnar, en málefni þess veika og smáa býr við hjarta hennar. Fundvís var hún sem starfandi Landbúnaðarráðherra á góð ráð og alltaf bændum hliðholl. Á Búnaðarþingi spurði hún á dögunum ,,hversvegna notið þið bændur ekki fánaröndina á hreinar íslenskar vörur, kjötið, mjólkina og græn-metið, svo valið sé auðvelt fyrir neytendur. Þetta gera franskir bændur og fá að nota þjóðfánann sinn sínu fólki til glöggvunar,” bætti hún við.

Þegar ég horfi yfir sviðið er Katrín hreinskiptin og notar aldrei stór eða ljót orð um andstæðinga sína eða nokkurn mann, það er ekki til í hennar vopnabúri. Katrín skorar hátt og að reynslu er hún keppinautum sínum fremri. Þjóð sinni til sóma hvar sem hún hefur komið fram. Forseti Íslands er höfuðstjórnsýslunnar og þar hafa fyrrum forsetar oft sýnt hæfni til úrlausnar í vandasömum málum.

Katrín Jakobsdóttir verður forseti allrar þjóðarinnar frá fyrsta degi og veldur erfiðum verkefnum vel. Svo mun hún hafa mannbætandi áhrif á mannlífið eiga gott með að koma fram og verða mikilsmetin þjóðhöfðingi sakir mannkosta og reynslu. Katrín Jakobsdóttir er verðugur kandidat sem forseti og þjóðhöfðingi okkar íslendinga. Hún er alþýðukona sem hafist hefur til æðstu metorða vegna mannkosta sinna.

Guðni Ágústsson

Nýjar fréttir