7.8 C
Selfoss

50 ára afmælismót HSK í blaki karla 

Vinsælast

Þrjú lið tóku þátt í héraðsmóti karla í blaki í vetur og úrslit réðust í seinni hluta mótsins sem fram fór í Hveragerði 5. mars sl.

Í ár eru 50 ár síðan að fyrsta HSK-mótið í blaki karla var haldið, en það fór fram á Laugarvatni 28. apríl 1974. Fimm lið tóku þátt í fyrsta mótinu og voru þau frá Umf. Laugdæla, Umf. Biskupstungna, Umf. Samhygð, Umf. Selfoss og Umf. Ingólfi.

Kjartan Lárusson í Austurey var í sigurliði Laugdæla á fyrsta mótinu, þá 19 ára gamall. Hann var mættur í Hveragerði með sínum mönnum á 50 ára afmælismótið og kom m.a. inná í úrslitaleiknum við Hamar. Sýnt var beint frá mótinu á facebooksíðu blakdeildar Hamars, sjá hér.

Hamar vann átta lotur á mótinu í vetur og tryggði sér HSK meistaratitilinn þriðja árið í röð og þann áttunda frá upphafi. Laugdælir urðu í öðru sæti með fimm unnar lotur og Hrunamenn í þriðja með þrjár unnar lotur.

Þess má geta að Hrunamenn hafa unnið mótið oftast á þessum 50 árum, en þeir eru samtals með 21 titil, Samhygð hefur unnið 12 sinnum, Laugdælir sjö sinnum og Mímir einu sinni.

Nýjar fréttir