7.3 C
Selfoss

Ágúst Máni á forsetalista HR í annað sinn

Vinsælast

Ágúst Máni Þorsteinsson frá Selfossi var valinn á forsetalista Háskólans í Reykjavík á haustmisseri 2023 og er það í annað sinn sem hann kemst á þann góða lista, en fyrra skiptið var á hans fyrstu önn árið 2022. Ágúst Máni er 2. árs nemi við tölvunarfræðideild skólans.Þeir nemendur sem komast á forsetalista eru 1-3% sem ná bestum námsárangri í námi á hverri önn.

Markmiðið með forsetalista HR er hvatning fyrir nemendur sem ná framúrskarandi árangri í námi og til vekja athygli á árangri þeirra. Þeir nemendur sem komast á forsetalista hljóta styrk sem nemur skólagjöldum einnar annar. Auk þess er mikill heiður að komast á slíkan lista og getur viðurkenningin til dæmis skipt máli þegar sótt er um framhaldsnám eða atvinnu.

Nýjar fréttir