7.3 C
Selfoss

Um 200 gestir á fyrsta Nýsköpunar- og vísindadegi HSU

Vinsælast

Þann 20. febrúar var Nýsköpunar- og vísindadagur HSU haldinn í fyrsta sinn. Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra opnaði daginn og fagnaði framtaki Heilbrigðisstofnunar Suðurlands að standa fyrir degi sem þessum, en um 200 manns sóttu viðburðinn.

Alls voru flutt níu erindi um nýsköpunarverkefni sem hafa nýlega verið innleidd eða eru í innleiðingu á stofnuninni: Leviosa, nýtt sjúkraskrárkerfi, Dignio fjarheilbrigðisþjónusta, nýtt verklag á HSU; endurbætt ferli vegna móttöku þolenda ofbeldis, heimaspítali, krabbameinslækningar á Suðurlandi, gervigreind í myndgreiningu, slag innan tímamarka, geðheilsuvernd á meðgöngu og heilsa og næring barna. Langflest erindin voru haldin af starfsfólki HSU og öll til fyrirmyndar.

Heilbrigðisstofunun Suðurlands er stöðugt að leita nýrra leiða til að þjóna samfélaginu og leggur ríka áherslu á rannsóknir og þróun í nýsköpun til að efla gæði þjónustunnar.

Starfsfólk stofnunarinnar býr yfir ótrúlegri orku sem er lykillinn í að ná árangri á þessari vegferð en það hefur unnið að fjölda spennandi verkefna sem voru kynnt á viðburðinum.

Nýjar fréttir