9.5 C
Selfoss

Önnur sveitarfélög horfa til fjölskyldusviðs Árborgar

Vinsælast

Þverfaglega verkefnið „Frá vanvirkni til þátttöku“

Mennta- og barnamálaráðuneytið skrifaði í síðustu viku undir samstarfssamning við fjölskyldusvið Árborgar. Markmið nýs samnings er að þróa verkefni sem miðar að nýrri nálgun á hvernig virkja má ungt fólk til þátttöku í samfélaginu eftir tímabil vanvirkni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sveitarfélaginu Árborg.

Verkefnið verður unnið í þverfaglegri samvinnu frístundaþjónustu, velferðarþjónustu og skólaþjónustu innan fjölskyldusviðs Árborgar. Í verkefninu verða nýttir styrkleikar frístundageirans í gegnum verkfæri hans til að virkja ungt fólk á aldrinum 16 – 25 ára til virkni og þátttöku. Helstu styrkleikar við þær áherslur og það vinnulag sem unnið er eftir í verkefninu er aðgengileiki ungs fólks að þjónustunni og að þeim er fylgt yfir alla þá þröskulda sem geta orðið á vegi þeirra á leið sinni til að vera öflugur þátttakandi í samfélaginu.

Ótrúlegt starf í þágu unga fólksins

„Það er búið að vinna hér í Árborg ótrúlegt starf þegar kemur að málum ungs fólks,“ segir Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra. „Þessu sveitarfélagi hefur tekist hvað best á landinu að samtvinna skóla, félagsþjónustu og þetta starf og ná með því þeim árangri að þau eru farin að nota tómstundir og frístundir til að aðstoða börn sem eru að glíma við ýmsar áskoranir. Það er orðið slíkt að önnur sveitarfélög eru farin að horfa til þess“.

Mennta- og barnamálaráðuneytið styrkti verkefnið um 30 milljónir króna sem mun nýtast vel við þróun og upphaf verkefnisins. Verkefnið mun standa yfir í þrjú og hálft ár og i lok verkefnatímabilsins verður til afurð fyrir önnur sveitarfélög og/eða þjónustusvæði þar sem hægt er að aðlaga verkefnið að þörfum þeirra.

Í tilkynningunni er mennta- og barnamálaráðuneytinu færðar þakkir fyrir að hafa trú á verkefninu sem mun án efa styrkja stöðu frístundageirans sem virks þátttakanda í farsæld barna og ungs fólks og sýna fram á gildi öflugs þverfaglegs starfs innan sveitarfélaga og þjónustusvæða er kemur að farsæld.

Nýjar fréttir