8.9 C
Selfoss

Samtök fyrirtækja í landbúnaði ganga til liðs við Samtök iðnaðarins

Vinsælast

Samtök fyrirtækja í landbúnaði, SAFL, hafa gengið til liðs við Samtök iðnaðarins, SI, en samkomulag þess efnis hefur verið undirritað í Húsi atvinnulífsins.

Með samkomulaginu verða öll félög innan SAFL aðilar að SI og þar með Samtökum atvinnulífsins. Þannig bætast um tuttugu fyrirtæki í hóp 1.700 félagsmanna sem fyrir eru í Samtökum iðnaðarins. SAFL verða áfram fullgild félagasamtök með sjálfstæða stjórn, sjálfstæðan fjárhag og starfandi framkvæmdastjóra.

SAFL var stofnað í mars 2022 m.a. með það að markmiði að efla ímynd og styrkja samkeppnisstöðu íslensks landbúnaðar, stuðla að hagkvæmni í greininni og vera í forsvari gagnvart stjórnvöldum í málum er snerta hagsmuni og réttindi félagsmanna.

„Það er mikið fagnaðarefni að SAFL gangi til liðs við SI. Þetta er svo sannarlega góður liðsauki því innan SAFL eru mörg af stærstu og öflugustu fyrirtækjum í íslenskum matvælaiðnaði og landbúnaði. Í sameiningu munum við vinna að því að efla þessar mikilvægu atvinnugreinar enn frekar,“ segir Árni Sigurjónsson, formaður SI.

„Það er ánægjulegt að SAFL gangi til liðs við stærstu hagsmunasamtök atvinnurekenda á Íslandi og styrki þannig rödd landbúnaðarins í umræðu og stefnumótun íslensks atvinnulífs í heild. Mörg af helstu hagsmunamálum SAFL eru af sama meiði og SI vinna að í dag. Við hlökkum því til samstarfsins,“ segir Sigurjón R. Rafnsson, formaður SAFL.

Nýjar fréttir