6.7 C
Selfoss

Allir með á Selfossi

Vinsælast

Þau Ófeigur Ágúst Leifsson, formaður Suðra og Þórdís Bjarnadóttir ritari hafa gælt við það síðan árið 2011 að bjóða upp á íþróttir fyrir börn með sérþarfir. „Snemma árs 2023 kom tækifærið að fara af stað með slíkt starf þegar Allir með, samstarfsverkefni ÍSÍ, UMFÍ og ÍF var hrint af stað. Í byrjun desember 2023 fórum við á fund með deildarstjóra frístundaþjónustu Árborgar. Á þeim fundi ræddum við tíma í íþróttahúsi og hvernig við myndum hugsa okkur að byrja,“ segja Ófeigur og Þórdís.

Strax komu skráningar framar vonum

Þau ákváðu í kjölfarið að drífa sig af stað og stefndu að því að byrja 14. janúar á nýju ári með það að markmiði að byrja þó það yrðu ekki fleiri en tvö börn skráð. „Við sóttum um styrk í sjóðinn Allir með og fengum styrk upp á 1.000.000.-  Við útbjuggum auglýsingu sem velferðarsvið Árborgar sá um að senda á foreldra og forráðamenn allra barna á grunnskólaaldri, auk elstu barna í leikskólum, með skilgreinda fötlun. Strax komu skráningar framar okkar vonum.“ Þann 14.janúar mættu hvorki meira né minna en 17 börn á aldrinum 5-14 ára og nokkuð augljóst að þörfin er mikil.

„Í fyrsta tímanum vorum við aðallega að sjá og kynnast börnunum, sjá hvar þau standa í færni og áhuga.  Við fengum til liðs við okkur Lindu Ósk Þorvaldsdóttur iðjuþjálfa og fimleikaþjálfara sem einnig er með mikla reynslu í vinnu með fötluð börn.  Hún skipulagði tímann með upphafi miðju og enda,“ bæta þau við.

Styðja börn með sérþarfir við að iðka íþróttir með jafnöldrum

Markmið þeirra með tímunum eru m.a. að finna styrkleika og áhuga barnanna og gefa þeim tækifæri á að æfa þá íþrótt sem þau hafa áhuga á, meta stuðningsþörf þeirra og veita þeim þann stuðning sem þau þurfa. Leiðir þeirra að markmiðunum eru meðal annars að kynnast börnunum og fá forráðamenn til aðstoðar við að finna styrkleika og áhuga barnanna. Þá munu þau fá til sín gestaþjálfara frá UMFS til að kynna fjölbreyttar æfingar fyrir börnunum og aðstoða við að verða þeim úti um þann stuðning sem þau þurfa til að geta æft með jafnöldrum þær íþróttir sem þeim langar að iðka.

Nýjar fréttir