8.4 C
Selfoss

Kristbjörg forstöðumaður íþróttamannvirkja Bláskógabyggðar

Vinsælast

Kristbjörg Guðmundsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður íþróttamannvirkja Bláskógabyggðar. Aðdragandi þess er sá að á fundi sveitastjórnar Bláskógabyggðar í september sl. var samþykkt að leggja niður stöður beggja forstöðumanna íþróttamiðstöðva Bláskógabyggðar og koma í staðinn á stöðu forstöðumanns íþróttamannvirkja Bláskógabyggðar frá 1. janúar sl. Undir hina nýju stöðu heyra rekstur Íþróttamiðstöðvarinnar í Reykholti og Íþróttamiðstöðvarinnar á Laugarvatni, auk umsjónar með íþróttavöllum á Laugarvatni og í Reykholti.

Forstöðumönnum beggja íþróttamiðstöðvanna var boðið að taka þátt í matsferli vegna ráðningar í hið nýja starf. Niðurstaða þess var sú sem að framan greinir og hefur Kristbjörg tekið við starfinu.

Kristbjörg er með BSc gráðu í sálfræði og hefur starfað sem forstöðumaður Íþróttamiðstöðvarinnar á Laugarvatni frá því í ársbyrjun 2019, þar sem hún starfaði áður sem sundlaugarvörður.

Bláskógabyggð

Nýjar fréttir