5.6 C
Selfoss

Hlaup í kjölfar stærsta skjálfta í Grímsvötnum frá upphafi mælinga

Vinsælast

Í morgun kl. 06:53 mældist jarðskjálfti af stærð 4,3 í Grímsvötnum. Það er stærsti skjálfti í Grímsvötnum frá upphafi mælinga (1991). Síðustu daga hefur hægt vaxandi hlaupórói mælst á Grímsfjalli og síðan í gær hefur vatnsmagn í Gígjukvísl farið vaxandi. Jökulhlaup er því hafið úr Grímsvötnum. Líklegt er að jarðskjálftinn í morgun sé vegna þrýstingsléttis í kjölfar upphafs jökulhlaupsins. Þetta kemur fram á vef Veðurstofu Íslands.

Síðast varð hlaup úr Grímsvötnum í október 2022 og þar áður í kringum mánaðamót nóvember og desember 2021. Skv. mælingum Jarðvísindastofnunar er vatnsmagn í Grímsvötnum nú talið vera um 0,29 km3 sem er helmingi (50%) meira en fyrir hlaupið 2022 en tæpur þriðjungur vatnsmagns fyrir hlaup í lok árs 2021.

Erfitt reynist að meta hversu ört vatnið rennur úr vötnunum og niður farveginn undir Skeðarárjökli vegna þess að ekki næst samband við GPS tæki Jarðvísindastofnunar á íshellunni í Grímsvötnum. Í í tilkynningu frá Veðurstofu segir enfremur að hámarksrennsli verði að líkindum um eða fljótlega eftir helgi ef mið sé tekið af atburðarás síðustu tveggja hlaupa. Hámarksrennsli í Gígjukvísl við Þjóðveg eitt næst svo 1-2 sólarhringum seinna. Ekki er búist við að hlaupið komi til með að hafa áhrif á mannvirki.

Þá er tekið fram að fordæmi séu fyrir því að eldgos verði í Grímsvötnum eftir að vatn hleypur þaðan. Talið er að skyndilegur þrýstiléttir vegna lækkandi vatnsborðs hleypi af stað gosum. Síðast varð atburðarásin slík árið 2004 og þar áður 1934 og 1922. Mun oftar hefur þó hlaupið úr Grímsvötnum án þess að til eldgoss kæmi, og hafa 12 hlaup komið frá Grímsvötnum eftir 2004 án þess að eldgos hafi fylgt í kjölfarið. Síðast varð eldgos í Grímsvötnum árið 2011, en það var ekki í tengslum við jökulhlaup þaðan.

Vegna jökulhlaupsins og aukinnar skjálftavirkni verður fluglitakóði fyrir eldstöðina færður á gulan lit, í samræmi við það að eldstöðin sýnir merki um virkni umfram venjulegt ástand.

Nýjar fréttir