7.3 C
Selfoss

Stórglæsileg nýuppgerð ljósmæðra- og fæðingardeild á Selfossi

Vinsælast

Ljósmæðravakt HSU Selfossi hefur tekið miklum og frábærum breytingum síðustu vikur. Fæðingarstofan er nú komin inn á gang ljósmæðra- og fæðingardeildarinnar, mæðraverndin var færð um herbergi og til varð þá auka vinnurými sem er kallað Freyjukot. Svítan (sængurlegu herbergið) færðist til og svo er Hálsakot, annað vinnurými þar sem tekið er á móti göngudeildarkomum og meðgönguvernd. Leghálsskimanir fara einnig fram á deildinni ásamt 5 daga barnalæknisskoðunum. Það er fjölbreytt starfsemi á deildinni og eru öll boðin hartanlega velkomin.

Ljósmæður á HSU hafa fjölþætt verksvið. Þær annast almenna mæðravernd ásamt eftirliti með meðgöngutengdum vandamálum í samráði við Landspítala. Þær veita símaráðgjöf til barnshafandi kvenna og skimun fyrir leghálskrabbameini. Ljósmæður sinna mæðravernd á öllum heilsugæslustöðvum HSU.

Tekið er á móti börnum allan sólarhringinn og sængurkonum og börnum þeirra er sinnt í sængurlegu. Fæðingardeild HSU á Selfossi er fæðingardeild sunnlendinga en þar geta allar konur fætt, eigi þær eðlilega meðgöngu að baki og ef fæðingu ber eðlilega að.

Á fæðingardeildinni starfa reyndar ljósmæður sem leggja sig fram um að skapa heimilislegt andrúmsloft en gæta þó á sama tíma fyllsta öryggis móður og barns.

Meðfylgjandi myndir eru fengnar af vef HSU.

Nýjar fréttir