7.3 C
Selfoss

900 manna múrinn rofinn í Hrunamannahreppi

Vinsælast

Þann 7. desember voru 902 íbúar skráðir í Hrunamannahreppi. Í tilkynningu frá hreppnum segir að ekki sé von á öðru en að það fjölgi duglega í þeim hópi á næstu árum þegar nýjar íbúðir munu rísa.

Lausleg talning Aldísar Hafsteinsdóttur sveitarstjóra sýndi að búið væri að úthluta eða að framkvæmdir væru hafnar á um 50 íbúðum í og við þéttbýlið á Flúðum. „Þó að án vafa muni taka einhvern tíma að klára þær allar þá er ljóst að í þeim munu fjölskyldur framtíðarinnar búa sér heimili,“ segir Aldís.

Nýjar fréttir