5.6 C
Selfoss

Skáldastund í húsinu á Eyrarbakka

Vinsælast

Sunnudaginn 26. nóvember, kl. 16, lesa rithöfundar úr nýútkomnum verkum sínum í Byggðasafni Árnesinga. Í ár koma í stássstofuna þau Jónína Óskarsdóttir, Lilja Árnadóttir, Nanna Rögnvaldardóttir, Ófeigur Sigurðsson og Sölvi Björn Sigurðsson.

Jónína, bókasafnsfræðingur sem á ættir að rekja til Eyri og Ásabergs á Eyrarbakka les úr viðtalsbók sinni „Sitthvað af konu minni hverri – Konur á Eyrarbakka“. Lilja Árnadóttir kynnir bókina „Með verkum handanna“ sem fjallar um íslenskan refilsaum fyrri alda eftir textíl- og búningafræðinginn Elsu E. Guðjónsson. Lilja fyrrum sviðsstjóri Þjóðminjasafns er jafnframt ritstjóri bókarinnar. Nanna Rögnvaldardóttir sem er landsþekkt fyrir matreiðslubækur sínar ríður nú á vaðið með sína fyrstu skáldsögu „Valskan“. Ófeigur Sigurðsson sem hefur oft fengist við söguna í verkum sínum les úr bók sinni „Far heimur, far sæll“ þar sem rannsókn á Kambsráninu fræga er færð í nýjan búning. Tvær bækur koma úr smiðju Sölva Björns Sigurðssonar þetta árið, ljóðabókin „Anatomía fiskanna“ og  skáldsagan „Melankólía vaknar“.

Við bjóðum gesti hjartanlega velkomna á skáldastund í Húsinu. Það verður heitt á könnunni og í borðstofu má skoða jólasýninguna þar sem margt gleður augað.

Nýjar fréttir