6.1 C
Selfoss

Mýrdalshreppur verður annað sveitarfélag landsins til að ganga frá samning um aukið framboð íbúðarhúsnæðis

Vinsælast

Undirritaður hefur verið samningur milli Mýrdalshrepps, innviðaráðuneytis og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um aukið framboð íbúðarhúsnæðis í sveitarfélaginu á tímabilinu 2023-2032 og fjármögnun uppbyggingar hagkvæma íbúða og félagslegs húsnæðis, sjá tilkynningu á vef sveitarfélagsins.

Í samningnum við Mýrdalshrepp kemur fram það markmið að byggðar verði 200 nýjar íbúðir á næstu 10 árum með áherslu á kröftuga uppbygginu á fyrri hluta tímabils. Stefnt verði að því að byggja allt að 94 íbúðir á ári á næstu fimm árum og er það tvöföldun miðað við það sem fyrri áætlanir gerðu ráð fyrir.

Samkomulagið markar tímamót fyrir Mýrdalshrepp og styður við markmið sveitarfélagsins um heilbrigðan húsnæðismarkað fyrir ört fjölgandi hóp íbúa. Mýrdalshreppur verður við undirritun samkomulagsins annað sveitarfélagið á landinu til þess að marka skýra stefnu um aukið framboð íbúðarhúsnæðis á grundvelli rammasamnings ríkis og sveitarfélaga. Aukið framboð íbúða er lykilatriði í því að styðja við sjálfbæra byggðaþróun og samvinna ríkis og sveitarfélagsins er mikilvægur liður í áframhaldandi uppbyggingaráformum Mýrdalshrepps.

Nýjar fréttir