7.3 C
Selfoss

Vara við svikasímtölum

Vinsælast

Í tilkynningu frá lögreglu segir að CERT-IS, sem gegnir hlutverki landsbundins öryggis- og viðbragðsteymis vegna ógna, atvika og áhættu er varðar net- og upplýsingaöryggi, telji ástæðu til að vara við svikasímtölum sem hafa það markmið að plata fórnarlömb til að heimila innskráningu í heimabanka með rafrænum skilríkjum.

Svikasímtölin koma úr símanúmerum sem látin eru líkjast númerum íslenskra banka og greiðslufyrirtækja. Sá sem hringir talar ensku og segist vinna í fjarvinnu til að gefa skýringu á því. Aðilinn er sagður mjög sannfærandi en hann reynir að lokka fórnarlömb til að innskráningu í heimabanka með rafrænum skilríkjum. Þegar innskráningin er leyfð er nær samstundis reynt að skuldfæra kreditkort viðkomandi.

Nýjar fréttir