7.3 C
Selfoss

Fjölskylduskemmtun af bestu sort

Vinsælast

Lúðrasveit Þorlákshafnar verður með fjölskylduskemmtun af bestu sort föstudaginn 3.nóvember í Hlíðardalsskóla, Ölfusi. Þar mun sveitin leika þekkta kvikmyndatónlist úr ólíkum áttum og frá mismunandi tímabilum. Undir spilamennskunni munu rúlla myndskeið úr viðkomandi kvikmyndum á stórum skjá.

Á efnisskránni má meðal annars finna tónlist úr kvikmyndum eins og Harry Potter, Mission Impossible, Shrek og Hringjaranum úr Notre Dame. Eitthvað fyrir alla.

Tónleikarnir hefjast klukkan 20:00 og stjórnandi er Daði Þór Einarsson.

Sem fyrr segir er um viðburð að ræða sem hentar öllum aldri og ungir sem aldnir geta komið og notið saman. Hægt er að nálgast miða á tix.is.

Nýjar fréttir