2.3 C
Selfoss

Hægt að sækja um vegabréf á netinu

Vinsælast

Sýslumenn og Þjóðskrá hafa nú opnað fyrir forskráningar og greiðslu fyrir vegabréfsumsóknir á Ísland.is. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stjórnarráði Íslands.

Þar segir að með tilkomu breytingarinnar komi umsóknarferli vegna vegabréfa til með að styttast til muna, auk þess sem forsjáraðilar þurfa ekki báðir að mæta með börnum sínum til sýslumanns til að sækja um vegabréf.

Þegar skráningu á vefnum er lokið mætir umsækjandi til sýslumanns til að ljúka þeim hluta umsóknarinnar sem kallar á viðveru, svo sem myndatöku, undirritun og fingrafaraskráningu. Hægt er að bóka tíma í myndatöku á höfuðborgarsvæðinu. Ekki þarf að bóka tíma á öðrum umsóknarstöðum.

Umsókn um vegabréf hefur hingað til falið í sér meira umstang umsækjenda á skrifstofu sýslumanns og ber þar helst að nefna útfyllingar á eyðublöðum, bið hjá gjaldkera til að greiða fyrir vegabréfið og bið í myndatöku. Með forskráningu og greiðslu á Ísland.is er þessu ferli hraðað á þann hátt að umsækjandi hakar einfaldlega við á Ísland.is að hann óski eftir vegabréfi, gengur síðan frá greiðslu og mætir að lokum til sýslumanns beint í myndatöku til að klára umsóknarferlið og getur gert það á hvaða skrifstofu sýslumanns sem er á landinu óháð því hvar þeir búa.

Forsjáraðilar með börn eiga nú enn hægara um vik að sækja um vegabréf því nú geta þeir samþykkt umsóknina fyrir sitt leyti í stafrænu ferli. Annar forsjáraðilinn byrjar umsóknarferlið og hinn fær stafræna beiðni með tölvupósti og á Mínar síður um að samþykkja útgáfu vegabréf barnsins sem sótt er um fyrir.

Útgefin vegabréf á Íslandi á þessu ári eru farin að nálgast 48.000. Flest vegabréf á einu ári voru gefin út árið 2016 þegar um 76.000 vegabréf voru gefin út.

Nýjar fréttir