0.4 C
Selfoss

Byggðaþróunarfulltrúar á vinnufundi í Skálholti

Vinsælast

Byggðaþróunarfulltrúar á Suðurlandi hittumst á dögunum til vinnufundar ásamt starfsmönnum SASS. Var fundað í Skálholti með það að markmiði að styrkja samstarfið, efla tengsl og rýna hlutverk byggðaþróunarfulltrúa með sérstakri áherslu á leiðtogafærni og ráðgjafarþjónustu.

Til liðs við hópinn var leiðtogaþjálfarinn, lögfræðingurinn og viðskiptafræðingurinn Elmar Hallgrím Hallgrímsson sem leiddi hópinn í gegnum þjálfun í leiðtogafærni. Þegar hlutverk byggðaþróunarfulltrúa eru rýnd, sem snúa meðal annars að því hvetja fólk áfram til góðra verka og að tengja saman einstaklinga, fyrirtæki og verkefni, er ljóst að leiðtogafærni getur komið sér afar vel. Elmar mun fylgja þjálfuninni eftir með því að koma inn á vikulega fundi byggðaþróunarfulltrúa í nokkur skipti.

Í lok dags fékk hópurinn að kynnast Uppsveitum Árnessýslu örlítið betur. Hófst það með áhugaverðri kynningu um Skálholt, en svæðið er svo sannarlega áhugavert. Með sanni má segja að saga Skálholts hafi mikið menningarlegt gildi og sérlega gaman að heyra sögu staðarins allt aftur til fornaldar. Því næst var haldið í Friðheima þar sem einn stofnanda og eigenda Friðheima, Knútur Rafn Ármann, tók hópinn í afar áhugaverða kynningu um fyrirtækið, upphaf þess og framgang.

Alls eru starfandi byggðaþróunarfulltrúar á sex atvinnusóknarsvæðum af sjö á Suðurlandi. Fólk er hvatt til að kynna sér nánar þá þjónustu sem byggðaþróunarfulltrúar hafa upp á að bjóða, m.a. í formi ráðgjafarþjónustu.

Sjá nánar hér.

Nýjar fréttir