6.1 C
Selfoss

Íris er nýr bæjarritari Hveragerðisbæjar

Vinsælast

Þann 14. September sl. samþykkti bæjarstjórn Hveragerðisbæjar að ráða Írisi Bjargmundsdóttur í starf bæjaritara hjá Hveragerðisbæ.

Starfið var auglýst 29. júní 2023. Alls bárust þrettán umsagnir um starfið en fjórir drógu sig til baka og voru níu umsóknir metnar í ráðningarferlinu.

Íris er með BA gráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík og síðar ML gráðu í lögfræði og nam tölvunarfræði frá sama skóla.

Hún starfaði sem lögfræðingur hjá Reitum fasteignafélagi 2009 – 2010.

Frá árinu 2010 hefur hún starfað sem lögfræðingur í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu og forvera þess. Íris var sendifulltrúi ráðuneytisins hjá fastanefnd Íslands gagnvart ESB á árunum 2020 – 2022.

Nýjar fréttir