2.6 C
Selfoss

Frítt í landsbyggðarstrætó á bíllausa daginn

Vinsælast

Á bíllausa daginn 22. september verður frítt í Strætó bæði á höfuðborgarsvæðinu og með landsbyggðarstrætó. Bíllausi dagurinn er haldinn í tilefni af evrópsku samgönguvikunni sem er frá 16. – 22. september.

Strætó hefur tekið þátt í samgönguvikunni með viðburðinum Bíllausi dagurinn undanfarin ár og í ár ákvað Vegagerðin að taka einnig þátt en Vegagerðin rekur og ber ábyrgð á landsbyggðarstrætó. Með því verður frítt í Strætó á milli byggðarlaga í fyrsta sinn.

Þetta er því tilvalið tækifæri fyrir fólk til að breyta út af vananum, hvíla bílinn og velja fjölbreyttari og vistvænni ferðamáta.

Nýjar fréttir