8.9 C
Selfoss

Kvikmyndin Konungur fjallanna

Vinsælast

Bíóhúsið á Selfossi var troðfullt af fólki á sunnudagskvöldið var, þar sem fram fór frumsýning á kvikmyndinni Konungur fjallanna. Kristinn Guðnason fjallkóngur á Landmannaafrétti lét gesti sína bíða eftir sér eins og alvöru kvikmyndastjarna. Mikil eftirvænting lá í loftinu smalar og vinir fjallmannanna voru mættir. Ekkert er jafn heillandi eins og göngur og réttir á haustin.

Myndin fangaði vel ævintýrið um líf og starf sauðfjárbóndans frá sauðburði til rétta. En hæst reis myndin við smalamennsku í einu fegursta fjalllendi Íslands inn við Landmannalaugar og Hekla er drottning öræfanna þar sem fjallkóngurinn Kristinn Guðnason stýrir liði sínu til smalamennsku. Myndin sýnir vel töfra íslenskrar náttúru, þar sem smalinn fer um fjöll og firnindi sundríður ár og rekur lagðprúða hjörðina til rétta. Fjallkóngurinn er sögumaður myndarinnar þar bregst Kristinn ekki af hógværð og festu segir hann söguna.

Kristinn er sannur bóndi og rekur af tilfinningu, þann unað sem smala-mennskur, sauðkindin og hesturinn gefur bóndanum. Hann ann afrétti sínum og í 42 ár hefur hann stýrt liði sínu og farið í smalaferðir í ein sextíu ár. Gestir kóngsins og smalanna eru svo fólk frá mörgum þjóðlöndum , margir koma aftur haust eftir haust. Hver sá sem horfir á þessa mynd skilur á eftir hvílík menning er fólgin í smalamennskum um afrétti landsins. Hestar og menn svitna saman og gleðin yfirgnæfir allt erfiði.

Myndinni er leikstýrt af Arnari Þórissyni og framleiðendur myndarinnar eru Áslaug Pálsdóttir og Guðrún Hergils Valdimarsdóttir. Tónlist er í höndum Úlfs Eldjárn og hljóð Péturs Einarssonar.  Þessa kvikmynd verða allir að horfa á og hana ætti að sýna í skólum landsins. Myndin er ákall um forna og nýja menningu og landbúnað sem er einstakur á veraldarvísu.

Ég skora á sunnlendinga að njóta kvikmyndarinnar Konungur fjallanna í Bíóhúsinu á Selfossi næstu vikur. Ennfremur verður hún sýnd í Laugarásbíói í Reykjavík. Myndir kallar á fjölskylduferð í bíó.

Guðni Ágústsson

Nýjar fréttir