11.4 C
Selfoss

Joe & The Juice víkur fyrir South Center

Vinsælast

Ný ferðaþjónustumiðstöð, South Center, verður opnuð í miðbænum á Selfossi í haust. Þar verða seldar ferðir um Suðurland, auk almennrar upplýsingaþjónustu við ferðamenn en sérstök áhersla verður á nýsköpun og þróun ferðamöguleika frá Selfossi.

South Center verður til húsa að Austurvegi 2a, en veitingastaðurinn Joe & The Juice hverfur á braut, í tengslum við endurskipulagningu þess fyrirtækis. Birgir Bieltvedt, eigandi Joe & The Juice á Íslandi, segir að eftir að félagið dró sig út úr nýlegu útboðsferli á veitingastarfsemi í Leifsstöð, þar sem félagið hafði starfrækt nokkra staði um árabil, hafi verið ákveðið að leggja áherslu á veitingastaði þess á höfuðborgarsvæðinu. „Forsvarsmenn miðbæjarins sýndu okkur skilning og það er ánægjulegt að góð lausn fékkst í málið. Það er með trega sem við kveðjum Selfoss, að minnsta kosti í bili,“ segir Birgir.

South Center er samstarfsverkefni nokkurra ferðaþjónustufyrirtækja á Selfossi og Davíðs Lúthers Sigurðarsonar, sem verður stjórnarformaður South Center. Davíð Lúther, sem er búsettur á Selfossi, var meðal annars stofnandi og framkvæmdastjóri stafrænu auglýsingastofunnar Sahara áður en hann hóf undirbúning South Center.

„Það er virkilega spennandi að taka þátt í uppbyggingunni hér á Selfossi með þeim kröftuga hópi sem stendur að miðbænum nýja,“ segir Davíð Lúther. „Hugmyndin er að byggja Selfoss upp sem miðstöð í ferðaþjónustu fyrir Suðurland með góðu framboði ferða og afþreyingar og öflugu markaðsstarfi.“

Katrín Björk Eyjólfsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri South Center en hennar bakgrunnur kemur helst úr verslunarrekstri bæði í Noregi og á Íslandi, en hún starfaði meðal annars hjá IKEA og The Pier. Katrín er nýlega flutt á Selfoss.

„Framundan er mikil, en skemmtileg vinna við að setja upp South Center í þessu fallega húsnæði, ásamt því að hitta alla framtíðar samstarfsaðila á svæðinu. Ég hvet líka alla þá sem áhuga hafa á að koma sínum gististað, ferðþjónustu eða öðru skemmtilegu á framfæri að hafa samband við mig. Það má einnig nefna að þessa dagana erum við að auglýsa eftir starfsfólki inni á Alfreð og hvet ég áhugafólk um ferðaþjónustu sækja um,“ segir Katrín.

Nýjar fréttir