6.1 C
Selfoss

Sauðfjárréttir á Suðurlandi

Vinsælast

Sauðfjárréttir á Suðurlandi hefjast í dag í Hrunamanna- og Gnúpverjahreppum. Hér að neðan má sjá lista yfir tímasetningar á auglýstum réttum sem framundan eru á landshlutanum.

Hrunaréttir í Hrunamannahreppi, Árn. föstudaginn 8. september
Skaftholtsréttir í Gnúpverjahreppi, Árn. föstudaginn 8. september
Reykjaréttir á Skeiðum, Árn. laugardaginn 9. september
Tungnaréttir í Biskupstungum laugardaginn 9. september kl. 9.00
Haldréttir í Holtamannaafrétti, Rang. sunnudaginn 10. september
Þóristunguréttir, Holtamannaafr., Rang sunnudaginn 10. september
Fjallrétt við Þórólfsfell, Rang. mánudaginn 11. september kl. 10.00
Reyðarvatnsréttir á Rangárvöllum laugardaginn 16. september kl. 11.00
Fossvallarétt í Lækjarbotnalandi laugardaginn 16. september kl. 14.00
Húsmúlarétt við Kolviðarhól, Árn. laugardaginn 16. september kl. 14.00
Heiðarbæjarrétt í Þingvallasveit, Árn. laugardaginn 16. september kl. 15.00
Fljótshlíðarrétt í Fljótshlíð, Rang. sunnudaginn 17. september kl. 11.00
Þórkötlustaðarétt í Grindavík sunnudaginn 17. september kl. 14.00
Ölfusrétt í Reykjadal, Ölfusi sunnudaginn 17. september kl. 15.00
Brúsastaðarétt í Þingvallasveit, Árn. sunnudaginn 17. september kl. 17.00
Grafningsrétt í Grafningi mánudaginn 18. september kl. 9.45
Landréttir við Áfangagil, Rang. fimmtudaginn 21. september
Seljalandsréttir undir Eyjafjöllum, Rang. laugardaginn 23. september
Selvogsrétt í Selvogi, Árn. sunnudaginn 24. september kl. 9.00
Austur-Landeyjaréttir hjá Grenstanga, Rang. sunnudaginn 24. september kl. 14.00
Vestur-Landeyjaréttir við Forsæti, Rang. sunnudaginn 24. september kl. 14.00

 

Heimild:  Bændablaðið.

Nýjar fréttir