2.6 C
Selfoss

Samkaup semur við Pure North um ráðgjöf í úrgangsstjórnun

Vinsælast

Samkaup hafa gert samning við Pure North um heildstæða ráðgjöf í úrgangsstjórnun verslana Nettó, Kjörbúðar, Krambúðar og Iceland um land allt. Hlutverk Pure North verður að halda utan um og bæta úrgangsstjórnun Samkaupa með það að markmiði að ná fram mestu mögulegu skilvirkni í málaflokknum, út frá sjónarmiðum umhverfismála, kostnaðar og menningar innan Samkaupasamstæðunnar. Horft er til framtíðar í samningnum og mun Pure North aðstoða Samkaup í þessari vegferð næstu 2 árin hið minnsta en Samkaup reka 64 matvöruverslanir á Íslandi undir vörumerkjum Nettó, Iceland, Kjörbúðar, og Krambúðar.

Pure North er umhverfistæknifyrirtæki sem rekur einu plastendurvinnslu landsins í Hveragerði. Þá býður Pure North ráðgjöf til fyrirtækja og sveitarfélaga í úrgangsstjórnun þar sem innleiðing skilvirkra og praktískra lausna í úrgangsmeðhöndlun er í fyrirrúmi. Fyrirtækið leggur mikið uppúr þróunarvinnu sem miðar að því að koma nýjum lausnum, bæði í hugbúnaði og vélbúnaði, í virkni svo hægt sé að ná besta mögulega árangri í úrgangsstjórnun hverju sinni.

„Við hjá Samkaupum höfum sett okkur metnaðarfull markmið og viljum vera leiðandi afl á sviði hringrásar og sjálfbærni í matvöruverslun. Pure North er frábær viðbót við samstarfsaðila okkar og mikilvægur hlekkur í skilvirkri vinnu í samfélaginu hvað varðar minnkun úrgangs á landsvísu. Hluti samstarfsins felur í sér uppsetningu á jarðgerðarvélum við verslanir Samkaupa og verður leitast við að koma afurðinni aftur í hringrás þar sem næringarefnin nýtast t.d. við ræktun og uppgræðslu“ segir Gunnur Líf Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri verslunar- og mannauðssviðs Samkaupa. „Við erum á mjög spennandi vegferð og ég held að þessi hringrásarhugsun muni breyta hugsunarhætti í verslunarrekstri á Íslandi og vonandi stuðla að breyttu hugarfari í samfélaginu í heild.“

Markmiðið með samningnum er að draga úr sóun með aukinni flokkun á öllum starfsstöðvum samstæðunnar og sýna samfélagslega ábyrgð í verki með gagnsæi í flokkun á sorpi, minna kolefnisspori sem og skilvirkari úrvinnslu á þeim efnum sem falla til. Einnig verður hugað að minna kolefnisspori á öllum flutningaleiðum til og frá verslunum og starfsstöðvum Samkaupa.

Sérfræðingar Pure North munu heimsækja starfsstöðvar Samkaupa og gera þar ítarlega úttekt á ferlum, kostnaði og árangri í flokkun. Gerð verður þarfagreining og í kjölfarið verður nýr vélbúnaður og nýir verkferlar innleiddir til söfnunar og meðhöndlunar á lífrænum úrgangi sem fellur til í verslunum. Þá verður unnið að því að draga úr kostnaði og auka flokkunar- og endurvinnsluhlutfall m.a. með tilnefningu grænna fyrirliða í hverri verslun.

„Með þessu samstarfi eru Samkaup að sýna þann metnað sem þarf til að gera róttækar breytingar í rekstri og ná þannig markmiðum sínum í umhverfis- og loftslagsmálum, en einnig til að styðja við hringrásarhagkerfið. Við erum stolt af því að fylgja Samkaupum á þessari vegferð og erum sérlega ánægð með áherslu þeirra á samstarf við hagaðila í hverju samfélagi fyrir sig og gagnsæi í öllu umbótaferlinu, því við teljum að það sé grundvöllur árangurs í verkefnum sem þessum. Við hlökkum til að vinna að betri framtíð með Samkaupum,“ segir Börkur Smári Kristinsson, nýsköpunar- og þróunarstjóri hjá Pure North.

Nýjar fréttir