6.1 C
Selfoss

Hákon setti Íslandsmet

Vinsælast

Hákon Þór Svavarsson, meðlimur í Skotíþróttafélagi Suðurlands, setti nýtt Íslandsmet í haglabyssugreininni Skeet á Landsmóti Skotíþróttasambands Íslands, sem haldið var á skotsvæði Skotíþróttafélags Suðurlands við Þorlákshöfn um helgina.

Hákon náði 122 af 125 mögulegum stigum en Arnór Logi Uzureau úr SÍH sigraði keppnina með 114 stig og 49 í úrslitum, í öðru sæti varð Daníel Heiðarsson úr SÍH með 106/44 stig og í því þriðja varð svo Hákon með 122/37 stig.

Í fjórða sæti varð Guðlaugur Bragi Magnússon úr SA með 102/30 stig, Jón Gunnar Kristjánsson úr SÍH varð fimmti með 102/19 stig og í sjötta sæti hafnaði Jakob Þór Leifsson úr SFS með 116/12 stig.

Nýjar fréttir