3.9 C
Selfoss

Gosmóða dregur úr skyggni á Suðurlandi

Vinsælast

Mikil gosmóða er nú suðvestanlands og á Suðurlandi. Gosmóðan lítur út eins og þokuloft og dregur úr skyggni.

Í tilkynningu frá Umhverfisstofnun segir að gosmóða sé frábrugðin SO2 gasmengun frá eldgosinu.
Gastegundin SO2 losnar í miklum mæli frá eldgosinu og mælist á SO2 gasmælum sem eru víða á Suðvesturlandi. Gosmóða er hins vegar gosmökkur sem er nokkura daga gamall og er núna að koma utan að hafi úr suðaustri. Gastegundin SO2 í gömlum gosmekki hefur að stærstum hluta hvarfast yfir í SO4 agnir sem eru þá ekki lengur gas heldur mjög fínt svifryk. Þar sem SO4 eru agnir mælast þær ekki á SO2 gasmælum heldur eingöngu á svifryksmælum.
Núna í morgun hafa mælst hækkuð gildi á fínu svifryki víða suðvestanlands. Þessar agnir geta verið ertandi fyrir þau sem eru viðkvæm fyrir, sem ættu að forðast óþarfa áreynslu utandyra meðan þetta ástand varir.
Nánar upplýsingar um ástandið má sjá hér.

Nýjar fréttir