1.1 C
Selfoss

Moskvít gefur út óð til verkfólksins

Vinsælast

Í dag gaf Moskvít út nýtt lag af væntanlegri plötu, Superior Design, en lagið heitir Beautiful Life. Þetta er fyrsta lagið frá Moskvít þar sem Guðmundur Helgi Eyjólfsson og Paolo Decena grípa í gítarinn, Gummi þá á riðma og Paolo rífur í solo gítar. Ásamt Sjonna(söng&bassi), Alexander(trommur) og Jón Aron(piano) móta þeir nýja andlit Moskvitar og vill ég meina að það sé undurfagurt.

Bandið hefur verið að spila lagið á tónleikum víða um landið og fengið frábærar viðtökur.

Um lagið

Beautiful Life er taktfast og líflegt en fjallar þó ekki beint um hvað lífið er fallegt, heldur breytingar á umhverfi og hvort þær séu alltaf til hins betra. Er rangt að sakna hlutanna eins og þeir voru? Með aldrinum á fólk það til að hætta að þekkja eigið samfélag. Eru hlutirnir að breytast eða erum við að breytast? Til hins verra eða betra? …það er erfitt að segja.

Áður fyrr var fólk sjálfbærara; það þurfti að geta gengið í öll störf, verið sveigjanlegt og búið yfir seiglu. En nú til dags einbeitir fólk sér frekar að einhverju einu sem oft á tíðum gerir það ósjálfbjarga í svo mörgu öðru.

Það er varhugavert að ganga með öll egg í einni körfu vegna þess að þó að sérþekkingu fylgi styrkleikar þarf maður að beygja sig undir sérþekkingu og tíma annarra.

Kassagítarinn spilar inn lagið og það þróast áfram þar sem hljóðfærin byggja út frá tónunum sem hann lagði. Kassagítarinn fær síðan minna hlutverk, minna pláss. En það er eitt sem má ekki gleyma …hvað setti tóninn?

Lagið er óður til verkafólksins. Fólkið sem byggði samfélagið upp en passar ekki í staðlað kerfið og er þar af leiðandi deyjandi stétt.

Nýjar fréttir