1.7 C
Selfoss

Suðurlandsdjass heldur áfram á laugardaginn

Vinsælast

Einstakir djasstónleikar verða í portinu hjá Tryggvaskála næstkomandi laugardag klukkan 15:00. Hljómsveitin DJÄSS, skipaðri Karli Olgeirssyni píanóleikara, Kristni Snæ Agnarssyni trommuleikara og Jóni Rafnssyni bassaleikara, mun þá leika fyrir gesti, en hljómsveitin hefur starfað frá árinu 2010.

Tríóið, sem fyrstu 10 starfsárin bar nafnið Hot Eskimos, hefur skapað sér nafn og sérstöðu með jazzútsetningum á íslenskum rokk-, punk- og dægurlögum. Þannig var lagavalið á þeirra fyrsta geisladiski, Songs From the Top of the World (2011), og fékk hann frábæra dóma gagnrýnenda. Þessi diskur er nú einnig fáanlegur á vinyl. Á disknum We ride Polar Bears (2013) mátti heyra, auk þekktra íslenskra laga, nokkur frumsamin lög og erlend. Þriðja plata tríósins, sem einfaldlega ber nafnið DJÄSS kom út árið 2021 og inniheldur eingöngu frumsamið efni. Fyrir tónsmíðarnar á þeirri plötu hlaut Karl Olgeirsson tilnefningu til íslensku tónlistarverðlaunanna sem tónskáld ársins í flokknum „jazz og blús“. Tónleikadagskráin samanstendur af lögum af þessum plötum auk laga sem ekki hafa komið út, bæði tökulaga og frumsaminna, en tríóið vinnur nú að sinni fjórðu plötu. Sjá nánar um tríóið á www.djass.com

Tónleikar eru í boði, Sass, Tryggvaskála, Viking léttöl, Fíh og Sub ehf. Frítt er á viðburðinn.

Nýjar fréttir