7.3 C
Selfoss

Anna Katrín Víðisdóttir íþróttamaður Hrunamannahrepps 2022

Vinsælast

Viðurkenningar fyrir íþróttafrek á árinu 2022 voru afhentar í Hrunamannahreppi á hátíðardagskrá þjóðhátíðardagsins eins og venja hefur verið.

Þrjú efnileg ungmenni hlutu viðurkenningar í þetta sinn. Það voru þau Aldís Fönn Benediktsdóttir frjálsíþróttakona sem varð Íslandsmeistari utan húss í kúluvarpi 13 ára stúlkna, Anna Katrín Víðisdóttir körfuknattleikskona var í landsliði U16 stúlkna í körfuknattleik og lék á NM og EM síðasta sumar og loks Kormákur Hjalti Benediktsson sem varð Íslandsmeistari innanhúss í hástökki 13 ára pilta og einnig Íslandsmeistari í boðhlaupi 14 ára pilta utan húss.

Anna Katrín Víðisdóttir var síðan valin íþróttamaður Hrunamannahrepps árið 2022. Anna Katrín lék með sameiginlegu liði Hrunamanna og Selfoss í 10. flokki kvenna og var hún algjör lykilleikmaður í liðinu. Eins og áður hefur komið fram var húnvalin í lokahóp U16 ára landsliðs Íslands sem tók bæði þátt á Norðurlandamóti í Finnlandi og Evrópukeppni í Svartfjallalandi. Var hún þar fyrirliði liðsins og skilaði því hlutverki vel. Hún er mjög jákvæður leiðtogi á vellinum og drífur liðsfélaga sína áfram með góðu hugarfari. Helstu styrkleikar Önnu inni á vellinum eru fjölbreyttur sóknarleikur og einnig hversu fylgin hún er í öllum sínum aðgerðum. Anna Katrín er einnig mjög jákvæð fyrirmynd yngri leikmanna og hefur verið körfuknattleiksdeildinni í Hrunamannahreppi afar hjálpsöm sem sjálfboðaliði. Hún hefur tekið að sér fjölmörg störf, meira að segja eftir að hún skipti um félag en frá haustinu 2022 hefur hún leikið með sameiginlegu liði Hamars/Þórs í 1. deild kvenna.

Eru þessum efnilegu ungmennum færðar hamingjuóskir með góðan árangur.

Nýjar fréttir