11.4 C
Selfoss

Breyting á fargjöldum í Landsbyggðarstrætó

Vinsælast

Vegagerðin hefur ákveðið að hækka verð á stöku fargjaldi úr 490 kr. í 570 kr, eða um 16,3%. Er þetta gert í samræmi við gjaldskrárhækkanir hjá Strætó bs. og tekur gildi 1. júlí nk.

Tímabilskort og nemakort verða þó óbreytt og hækka ekki að sinni.

Strætó bs. hækkaði fargjöld sín þann 3. október 2022 sem nemur ríflega 12% og fór almennt fargjald úr 490 kr. í 550 kr. Vegagerðin tók þá ákvörðum um að hækka ekki fargjöld sín að sinni.

Nú hefur Strætó bs. tekið ákvörðun um að hækka aftur verð á fargjöldum sínum og mun sú breyting eiga sér stað þann 1. júlí nk. Mun sú breyting snerta allar gerði farmiða hjá höfuðborgarvögnum.

Nýjar fréttir