7.8 C
Selfoss

Selfyssingar unnu hérðsmótið í sundi

Vinsælast

Héraðsmót HSK í sundi var haldið í Hveragerði 25. maí sl. og mættu keppendur frá þremur aðildarfélögum HSK til leiks.

Keppt var í 12 greinum á mótinu og unnu Selfyssingar sjö HSK meistaratitla og keppendur frá Hamri unnu fimm titla.

Stigahæsti keppandi mótsins í karlaflokki var Arnór Karlsson frá Selfossi með 21 stig og í kvennaflokki urðu jafnar með 21 stig þær Hafrún Kemp Helgadóttir Hamri og Karítas Líf Róbertsdóttir Selfossi.

Stigahæsta félag mótsins var Umf. Selfoss með 74 stig, Íþr.f. Hamar fékk 21 stig og Íþr.f. Suðri 16 stig.

Heildarúrslit mótsins má sjá á www.hsk.is.

Nýjar fréttir