9.5 C
Selfoss

Flóra og fuglar við Sogið

Vinsælast

Náttúrufræðingarnir Rannveig Thoroddsen og Einar Þorleifsson munu leiða létta og skemmtilega fræðslugöngu um Þrastarskóg á milli kl 14-16 á morgun, laugardaginn 10. júní. Litið verður eftir foldarskarti í skógarbotni og lagt við hlustir eftir fuglasöng á grein eða kvaki á Soginu.

Gangan er létt og hentar allri fjölskyldunni. Hún hefst við Alviðru og að lokinni göngu er boðið upp á kaffi/kakó og kleinur í Alviðru.  Alviðra er í Ölfusi, undir Ingólfsfjalli.

Í sumar stendur Alviðra fræðslusetur Landverndar fyrir tveimur öðrum skemmtilegum viðburðum, Jónsmessugöngu á Ingólfsfjall frá Alviðru undir leiðsögn Tryggva Felixssonar þann 24. júní og viðburðinn Líffræðileg fjölbreytni – lykillinn að farsælli framtíð, dagskrá á vegum Náttúruminjasafns Íslands þann 26. ágúst.

Þátttaka í sumardagskrá í Alviðrðu er gjaldfrjáls og öllum opin.

Nýjar fréttir