2.8 C
Selfoss

Eini drengjakór Íslands syngur í Skálholtskirkju

Vinsælast

Dagana 2.- 6. júní næstkomandi verður alþjóðlega drengjakórahátíðin „The Boys are Singing“ haldin á Íslandi í fyrsta sinn. Á hátíðinni tekur Drengjakór Reykjavíkur á móti Sofia Boys Choir frá Búlgaríu sem er meðal virtustu drengjakóra Evrópu. Hér er á ferð einstakur viðburður í íslensku tónlistarlífi.

Kórarnir syngja saman á þrennum tónleikum og verða þeir fyrstu í Skálholtsdómkirkju þann 3. júní kl 13:00. Á tónleikunum koma fram alls 50 söngvarar á aldrinum 8-20 ára sem flytja fjölbreytta efnisskrá þar sem íslensk og búlgörsk tónlist verður í fyrirrúmi. Tónleikarnir verða opnir öllum og frítt verður inn.

Drengjakór Reykjavíkur er eini drengjakór Íslands. Kórinn var stofnaður árið 1990 (upphaflega sem Drengjakór Laugarneskirkju) og fagnaði því 30 ára starfsafmæli árið 2020. Drengjakór Reykjavíkur hefur nú aðsetur í Neskirkju undir stjórn Þorsteins Freys Sigurðssonar sem hefur stjórnað kórnum síðan 2019. Drengjakór Reykjavíkur skipa um 20 drengir á aldrinum 8-15 ára sem syngja fjölbreytta tónlist af ýmsum toga, trúarlega og veraldlega, gamla og nýja. Fræðslu um tónlist er fléttað inn í kórstarfið þar sem sönggleðin er í fyrirrúmi.  Drengjakór Reykjavíkur heldur árlega jóla- og vortónleika, kemur fram við ýmis tilefni og tekur þátt í fjölbreyttum verkefnum, nú síðast Carmina Burana með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Eldborgarsal Hörpu 1. júní.

Sofia Boys Choir er elsti drengjakór í Búlgaríu, stofnaður árið 1968. Stjórnandi kórsins til ársins 1989 var Liliana Todorova en það ár tók Prof. Dr. Adriana Blagoeva við stjórnartaumunum og hefur stjórnað kórnum síðan. Kórinn syngur mjög fjölbreytta tónlist allt frá 14. öld til okkar daga og heldur fjölda tónleika á hverju ári, þar á meðal árlega jóla- og páskatónleika sem sérstök hefð er fyrir. Kórinn hefur gefið út tólf geisladiska og einn mynddisk og hefur sungið inn á átta plötur með öðrum listamönnum. Undir stjórn Blagoeva hefur Sofia Boys Choir auk þess unnið til fjölda verðlauna í alþjóðlegum kórakeppnum.

Sofia Boys Choir.

Sofia Boys Choir hefur ferðast víða og komið fram á tónleikum víða um lönd, þar á meðal í Japan. Hann kemur nú í fyrsta sinn fram á Íslandi í samstarfi við Drengjakór Reykjavíkur.

Hátíðin er styrkt af Íslandi, Noregi og Liechtenstein gegnum EEA Grants, Barnamenningarsjóði og Tónlistarsjóði.

Nýjar fréttir